Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Í dag skein sól

Í dag skein sól á sundin blá
og seiddi þá er sæinn þrá.
Og skipið lagði landi frá.
Hvað mundi fremur farmann gleðja?
Það syrtir að er sumir kveðja.

Ég horfi ein á eftir þér,
og skipið ber þig burt frá mér.
Ég horfi ein við ystu sker
því hugur minn er hjá þér bundinn
en löng er nótt við lokuð sundin.

En ég skal biðja’ og bíða þín
uns nóttin dvín og dagur skín.
Þó aldrei rætist óskin mín
til hinsta dags ég hrópa’ og kalla,
svo heyrast skal um heima alla.

Davíð Stefánsson