Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Nína
Nína
Núna
ertu hjá mér, Nína,
strýkur mér um vangann, Nína.
Ó, haltu' í höndina á mér, Nína
því þú veist að ég mun aldrei aftur,
ég mun aldrei, aldrei aftur,
aldrei aftur eiga stund með þér.
Það er
sárt að sakna, einhvers.
Lífið heldur áfram, til hvers?
Ég vil ekki vakna, frá þér
því ég veit að þú munt aldrei aftur,
þú munt aldrei, aldrei aftur
aldrei aftur strjúka vanga minn
Þegar
þú í draumum mínum birtist allt er ljúft og gott
og ég vildi' ég gæti sofið heila öld
því að nóttin veitir aðeins skamma stund með þér.
Er ég
vakna - Nína, þú ert ekki lengur hér
Opna augun - engin strýkur blítt um vanga mér
Dagurinn
er eilífð án þín,
kvöldið kalt og tómlegt, án þín.
Er nóttin kemur fer ég til þín.
Þegar
þú í draumum mínum birtist allt er ljúft og gott
Og ég vildi ég gæti sofið heila öld
Því að nóttin veitir aðeins skamma stund með þér
Er ég
vakna, Nína, þú ert ekki lengur hér
Opna augun, engin strýkur blítt um vanga mér
Er ég
vakna, ó... Nína, þú ert ekki lengur hér
Opna augun, engin strýkur blítt um vanga mér
Eyjólfur Kristjánsson
