Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Jarðarfarardagur

Það gerðist hér suður með sjó
að Siggi á Vatnsleysu dó.
:,:Og ekkjan hans Þóra var ekki að slóra
til útfararveislu sig bjó:,:

Það var logndrífa og ládauður sjór
er hinn látni í gröfina fór.
:,:Og ekkjan með sjarmi brá svuntu að hvarmi
men sáu að hryggðin var stór:,:

Klerkur sagði, "Holdið er hey
vér hryggjumst og kveinum ó vei
:,:Þann gæðamann tel ég er guði nú fel ég
við gleimum hans trúmensku ei":,:

Þegar gengin frá garði var drótt
kom granninn og talaði hljótt.
:,:Þó góðan með sanni þú syrgir nú manninn
má sorginni gleyma í nótt":,:

En Þóra sagði: „Því skal ei leynt
að þetta er fallega meint,
:,:en sorgina ég missti, er ég kistusmiðinn kyssti
þú kemur því góði of seint“:,:

Sigurður Þórarinsson