Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kiddi á Ósi
Ég oftast er kallaður Kiddi á Ósi,
en Kristján ég heiti og pabbi minn Jón.
Það sæmir víst ekki’ að ég sjálfum mér hrósi
þá segðu víst flestir: „Hann Kiddi er flón.“
En nú skal ég segja’ ykkur söguna’ af mér
sem sannlega töluvert raunaleg er.
Tra la la...........
Ég átti í gærkvöldi’ í erfiðu baxi,
ég ætlaði’ að láti inn hestana þá.
Einn klárinn hans pabba er kallaður Faxi,
og krakkana reynir að bíta og slá.
Hann vildi’ ekki inn, því að veðrið var gott,
en vék sér til hliðar og laumaðist brott.
Tra la la............
Ég kærði mig ekkert þótt klárinn væri’ ertinn,
og kollhúfur legði, og setti’ á mig rögg.
Ég náði með tröllauknu taki í stertinn.
Þá trylltist hann alveg og gaf mér nú högg.
Hann sló mig í lærið – í loftið ég flaug
og loks kom ég niður á gaddfreðinn haug.
Tra la la............
Og nú hef ég kolbláa kúlu á enni
og kjálkinn úr skorðum nú genginn víst er.
Og eymsla í hryggnum ég alls staðar kenni
og eitthvað er bogið við nefið á mér.
Og armurinn hægri er allur svo blár
og aumur er rassinn og maginn er sár!
Tra la la............
Stefán Jónsson
