Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Komdu langan veg
Komdu, komdu, komdu langan veg
yfir heiðar, eyðimerkur, sanda.
Ekki skulu jökulvötn þér granda
því verndarengill vera þinn skal ég.
Komdu, komdu, komdu langan veg
En eins og sólin saklaus áttu að skína
og senda til mín ástargeisla þína
því óumbreyttur æ og sí verð ég.
Komdu, komdu, komdu langan veg
að finna og sjá er fífill hjartans glöðum
flettir sundur lengi krepptum blöðum,
þá ég geisla þína að mér dreg.
Páll Ólafsson
