Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kvöld
Sjáið hvar sólin hún hnígur.
Svífur að kvöldhúmið rótt.
Brosir hún blítt er hún sígur.
Blundar senn foldarheims drótt.
Heyrið þér klukku, hún klingir við lágt,
kallar í húsin til aftansöngs brátt.
Klukka, ó, fær oss nú fró,
friðinn og heilaga ró.
Drottinn! Er dagsfagur ljomi
deyr burt og hylst vorri sýn
lyftist með aftansöngsómi
önd vor og hrópar til þín.
Ljósanna faðir, í ljósi sem býr,
Ljóð vorrar bænar í hæð til þín snýr.
Skugginn er skyggir öll ból
skjöldur oss vert þú og s
Steingrímur Thorsteinsson þýddi
