Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kvöldstund

Þegar degi hallar og allt er hljótt hjá mér
og kyrrð og ró í hjarta mínu er
þá ég fyllist löngun til að lofa þig
fyrir allt sem þú Drottinn gerir fyrir mig.

Því í dagsins amstri fæ ég styrk frá þér,
þú Drottinn Jesús dvelur æ hjá mér.
Það er svo gott að vita að þú ert vinur minn
og ég fæ alla tíð að vera þinn.

En fyrst af öllu vil ég þakka þér
það nýja líf sem þú hefur gefið mér.
Á krossi dóst þú fyrir sekan mig.
Ó, Drottinn Jesús, hve ég elska þig.

Já, þú veist það Jesús að ég þarfnast þín,
að frið og gleði fyllist sála mín
þegar bið ég til þín og lofgjörð færi þér
þú Drottinn Guð minn ert svo nálægt mér.

En fyrst af öllu vil ég þakka þér
það nýja líf sem þú hefur gefið mér.
Á krossi dóst þú fyrir sekan mig.
Ó, Drottinn Jesús, hve ég elska þig.

Höf. ókunnur