Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lífið hún sá
Lífið hún sá í ljóma þeim,
ljósinu’ af bláum augum tveim.
Álfarnir sjá um allan heim,
enginn er svona fríður.
Álfaþjóð, álfaþjóð
í brúðardansinn býður.
Glóir í ljóma hinn gamli bær
glaðar en sól á vori,
réttir arminn út og hlær
álfur í hverju spori.
En hver er röddin sæta sú
sem að eyrum líður.
Aldni heimur, ert það þú
orðinn svona fríður.
Komdu, komdu, omdu nú,
kallar rómur þýður.
Álfaþjóð, álfaþjóð
í brúðardansinn býður.
Þorsteinn Erlingsson
