Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ligga ligga lá

Ég fer líka í sveit

og ligga ligga lá

með beljum á beit

og ligga ligga lá.

Ljómandi verður gaman þá.

Þar eru ær

og ligga ligga lá.

Ég ætla að reka þær

og ligga ligga lá.

Ljómandi verður gaman þá.

Ég rifja og raka

ligga ligga lá

og lóurnar kvaka

ligga ligga lá.

Á hestbak ég fer

og ligga ligga lá

og hendist í ber

og ligga ligga lá.

Ég fer líka í sveit

og ligga ligga lá

að elta gamla geit

og ligga ligga lá.

Ljómandi verður gaman þá.

Á sólbjörtum degi

ligga ligga lá

ég leik mér í heyi

ligga ligga lá.

Svo fer ég að smala

ligga ligga lá,

um lautir og bala

ligga ligga lá.

Ég ætla upp í sveit

og ligga ligga lá

með beljur á beit

og ligga ligga lá.

Ljómandi verður gaman...:

ligga ligga ligga ligga lá.