Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lítill er hann kálfur
Lítill
er hann kálfur,
lítið einnig kann,
sperrti litla halann
og um græna grundu rann.
Og svona segir hann,
svona segir hann:
Bö bö bö
bö bö
bö bö bö.
Lambið úti’ í móunum
leikur sér af list,
kallar svo á mömmu
því að mikið er það þyrst.
Og komdu nú sem fyrst,
komdu nú sem fyrst.
Me me
me
me me me me me.
Folaldinu litla
finnst það mikið grín
að sveifla sér á sprett
þegar blessuð sólin skín.
Og röddin þess er fín,
röddin þess er fín:
Hu hu
hu
hu hu hu hu hu.
Geyspar grá kisa,
glettin undir brún.
Áðan var hún lítinn fugl
að elta út um tún.
Og svona segir hún,
svona segir hún:
Mjá mjá mjá
mjá mjá mjá mjá mjá.
Seppi úti’ á leiti
að gestum er að gá.
Bílana hann eltir
sem eru’ að fara hjá,
og kallar svona’ í þá,
kallar svona’ í þá:
Voff voff voff,
voff
voff voff voff voff.
Montin er hún hæna,
montnari er þó
haninn sem sig þenur
á þúfu úti’ í mó,
og syngur: Ga ga gó,
syngur ga ga gó,
ga ga ga
ga ga ga ga gó.
Einu sinni á skemmtun
allur skarinn fór,
þá tóku allir lagið
og kyrjuðu í kór,
og sá var svei mér stór,
sá var svei mér stór.
Bö-me-hu-
mjá-voff-ga-ga-gó.
