Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lítill kútur
Lítill kútur lúrir hér
ljúft í faðmi mínum,
laumar hönd í lófa mér
lokar augum sínum.
Berast ungu brjósti frá
bestu mannsins kenndir
er þú geisla ástar þá
inn í líf mitt sendir.
Lánið ætíð leiði þig,
ljúfi ömmu drengur,
er þú fram um ókunn stig
æviveginn gengur.
Gættu, elsku Gúndi minn,
gæfu þinnar hljóður.
Vertu, eins og afi þinn,
öllum mönnum góður.
Margrét Ólafsdóttir
