Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ljúfur drengur

Ljúfur drengur lokar brá,
lúrir sinni ömmu hjá.
Læðir hönd í lófann minn
litli kúturinn.
Friðarstraumur fer um sál,
fegrar lífið barnsins mál.
Bið ég Guð að blessa litla
Bergþór Njál.

Geymdu þína ljúfu lund,
lífið bættu alla stund,
þá mun gæfugeislinn þinn,
góði Beggó minn,
alltaf þína lýsa leið
lífsins rósum prýða meið.
Undu sæll í ást og trú
um æviskeið.

Margrét Ólafsdóttir