Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Morgunljóð

Klukkur kalla hátt
þær komu dagsins boða.
Vinnan bíður, vöknum nú
og vörpum letidoða.

Morgunglaðir, morgunhressir
mætum hverjum vanda.
Allir sannir Íslendingar
ávallt saman standa.

Orku eigum við
og enginn spari hana.
Gleðjumst, syngjum, gerum það
að góðum hollum vana.

Erfir landið æskan bráðum,
ástjörð starfs og ljóða.
Öllum sínum óskabörnum
yndi vill hún bjóða.

Ingólfur Jónsson frá Prestbakka