Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Mýflugan

Veiddi’ ég flugu, var það mý,
vænni’ en klár í haga.
Feiti hlaut ég henni í
heila tunnu’ úr maga.
Hver sem trúir kjáni telst,
kynleg er mín saga.

Brodd af flugu burtu sleit,
biturt vopn mér gerði.
Aðalsherra á mig leit,
alþjóð, girtan sverði.
Hver sem trúir kjáni er,
klókum Lyga-Merði.

Fláði svo af flugu skinn.
Flæmi þetta á ég.
Himnesk reyndist húðsængin,
henni undir lá ég.
Hver sem trúir kjáni er
krakkar, segja má ég.

Egill Bjarnason