Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Nonni

Þú ert ungur enn,

æskuástir seint gleymast,

ungur enn,

oft sterkar reynast,

of ungur enn til að elska og þrá

en ástin er ekki að spyrja um hvað hér má.

Af hverju fór hún frá mér,

hjarta mitt er sárt og þjáð.

Ekki mun ég aftur reyna

að elska aðra í bráð.

Ungur er ég enn að árum

en aldrei ég gleymt því get

að ást mín var ætluð henni

sem ég alltaf mikils met.

Þú ert ungur enn,

æskuástir seint gleymast,

ungur enn,

oft sterkar reynast,

of ungur enn til að elska og þrá

en ástin er ekki að spyrja um hvað hér má.