Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Nú er vetur úr bæ

Nú er vetur úr bæ

Nú er vetur úr bæ, rann í sefgrænan sæ
og þar sefur í djúpinu væra,
en sumarið blítt kemur fagurt og frítt
meður fjörgjafar ljósinu skæra.

Brunar kjöll yfir sund, flýgur fákur um grund,
kemur fugl heim úr suðrinu heita.
Nú er vetur úr bæ, rann í sefgrænan sæ,

nú er sumrinu fögnuð að veita.

Jónas Hallgrímsson

Uppi á himins bláum boga

Uppi' á himins bláum boga
bjartir stjörnuglampar loga,
yfir sjóinn undurbreiða
unaðsgeisla máninn slær.
En hvað er fegurð himinsala?
Hvað er rós og blómin dala
móti djúpu meyjar auga,
mátt er allan sigrað fær.

Benedikt Gröndal