Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ó, María mig langar heim
Ó, María, mig langar heim
Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár
og sjómennsku kunni hann upp á hár.
Hann saknaði alla tíð stúlkunnar
og mynd hennar stöðugt í hjarta hann bar.
Viðlag:
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera
ó, María hjá þér.
Í
höfnum var hann hrókur mikils fagnaðar
hann heillaði þar allar stúlkurnar.
En aldrei hann meyjarnar augum leit,
það átti ekki við hann að rjúfa sín heit.
Svo
kom að því hann vildi halda heim á leið,
til hennar, sem sat þar og beið og beið.
Hann hætti til sjós tók sinn hatt og staf
og heimleiðis sigldi um ólgandi haf.
En
fleyið bar hann aldrei heim að fjarðarströnd.
Hann ferðast ei meira um ókunn lönd.
En María bíður og bíður enn,
hún bíður og vonar hann komi nú senn.
Ólafur Gaukur
