Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þrek og tár

Hann:
Viltu með mér vaka´er blómin sofa
vina mín og ganga suður´að tjörn.
Þar í lautu lágan eigum kofa
lékum við þar okkur saman börn.
Þar við gættum fjár um fölvar nætur,
fallegt var þar úti' við hólinn minn.
Hvort er sem mér sýnist að þú grætur,
seg mér, hví er dapur hugur þinn?

Hún:
Hví ég græt, að burtu' er æskan bjarta,
bernsku minnar dáin sérhver rós.
Það er sárt í sínu unga hjarta
að sjá hve slökkna öll hin skærstu ljós.
Ó, hve fegin vildi ég verða aftur,
vorsins barn og hérna leika mér.
Nú er lamað þrek mitt, þrotinn kraftur,
þunga sorg á herðum mér ég ber.

Hann:
Hvað þá, gráta gamla æskudrauma,
gamla drauma, bara óra´og tál.
Láttu þrekið þrífa stýristauma
það er hægt að kljúfa lífsins ál.
Kemur ekki vor að liðnum vetri?
Vakna´ei nýjar rósir sumar hvert?
Voru hinar fyrri fegri, betri?
Felldu´ei tár en glöð og hugrökk vert.

Hún:
Þú átt gott, þú þekkir ekki sárin
þekkir ei né skilur hjartans mál.
Þrek er gull en gull eru líka tárin,
guðleg svölun hverri þreyttri sál.
Stundum þeim er þrekið prýddi´og kraftur
þögul höfug féllu tár um kinn.
En sama rósin sprettur aldrei aftur
þótt önnur fegri skreyti veginn þinn.

Guðmundur Guðmundsson