Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Réttarsamba

Á grundinni við réttarvegginn ganga þau í dans,
og Gunna stígur jitterbugg, en Jónki Óla-skans,
Jónki bóndi í hjáleigunni og kaupakonan hans,
brosljúf ástfús borgarmær, sem bregður ei við neitt.
:,:Ilmvatnsþvegin, uppmáluð, og augnabrúnareitt.
og Jónski hefur rakað sig og rauðan lubbann greitt.:,:

Hæ, hæ, hó, hó, tónar töfra’ og kalla
Hæ, hæ, hó, hó, hljóma klettar fjalla.

Og fullur máninn gægist yfir grettið tindaskarð,
geislasindri fölvu stráir laut og döggvott barð.
Er það bara blær, sem pískrar bak við réttargarð?
Heitt að Jóni hallast Gunna, hvíslar: „Ég er þreytt“
:,:Hvaða fjas og vitleysa og Jónki brosir gleitt.
Ó hann Jón það erkifljón, sem aldrei skilur neitt.:,:

Hæ, hæ, hó, hó grund við dansinn dynur,

Hæ,hó, hæ, hó, harmoníkan stynur.

Á grundinni við réttarvegginn gengið var í dans,
og þegar Jónki þreyttist á að þramma Óla skans.
vegavinnustrákur stökk af stað með Gunnu hans.
Og fullur máninn gægðist yfir grettið tindaskarð,
:,:glottir kalt að Jónka’ er skimar út um laut og barð.
Já - hamingjan má vita hvað af henni Gunnu varð.:,:

Hæ, hó, hæ, hó hrópar Jói og stynur

hæ, hó, hæ, hó dimmt í klettum dynur.

Loftur Guðmundsson