Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Rökkurró
Rökkurró
Vornætur
friður fyllir bæinn í rökkurró.
Sólin í vestri sest í æginn í rökkurró.
Og meðan rauðagulli reifast næturtjöld.
Þú kemur til mín í rökkurró.
Manstu
ekki vina fyrsta fundinn við Arnarhól.
Mörg var þar okkar unaðsstundin þá sezt var sól.
Við heyrðum svani kveða söng um ást og vor.
Og sátum þar ein í rökkurró.
Langt
er nú liðið síðan þá
því leiðir skildu og þú hvarfst mér frá.
Veistu? Ég vakti marga nótt.
Og vonaði og bað af heitri þrá.
Vina í
kvöld ég veit þú bíður við Arnarhól.
Tak mig í faðm því tíminn líður og sezt er sól.
Því enn á vorið nógar vonir fyrir þau
sem sitja hér ein í rökkurró.
