Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Rósin (ÓMÓ)

í vetrarins frosti og fönnum
fölnuðu jurtir í reit.
Til foldar nú laufblöðin féllu
er fjarlægðist árstíðin heit.
Og ilmrósin höfuð sitt hneigði,
það hrímkaldri jörðinni fól,
því unun að vori hún eygði
ef örlítið fengi hún skjól.

En mennirnir áttu í önnum,
og enginn því rósina sá,
þeir hættu að ganga um garðinn
er gróðurinn lagðist í dá.
Og svo komu vetrarins vindar
og veittust að rósinni hart,
sem langaði svo til að lifa
og líta’ aftur vorið sitt bjart.

Já, vindarnir kveinuðu´og hvæstu
og kuldanum læddu að rót,
þeir máttvana limarnar lömdu
svo lögðust þær jörðinni mót.
Nú dáin er ilmrósin unga,
því umhyggju mannanna’ ei naut.
En blómsálin hóf sig til hæða
á himinsins eilífðarbraut.

Margrét Ólafsdóttir