Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Segðu ekki nei

Halló, halló segir herrann, viltu koma að dansa í nótt?

Viðlag:

Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski,
segðu að þú elskir engan nema mig.
Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski,
þá aldrei, aldrei ég skilja mun við þig.

Unga stúlkan, hún er stórhrifin og strax hún segir já.
Arm í arm þau leiðast, ungu hjúin ætla ballið á.
Og er hljóma ljúfu lögin, blítt hann hvíslar: ,,Heyrðu mig,
viltu dansa þennan dans, ég gjarnan dansa vil við þig. 

Og í ljúfum draumi líður kvöldið, loks er komin nótt.
Og við trúum stundum tæplega hve tíminn líður fljótt.
Og er vangi strýkur vanga blítt af vörum hvíslað er:
Elsku litla sæta ljúfan, má ég labba heim með þér.

Ólafur Gaukur