Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stebbi og Lína

Þegar Stebbi fór á sjóinn, þá var sól um alla jörð

og hún sat á bryggjupollanum hún Lína,

grét í vasaklút og svuntuhorn og svartan skýluklút

og hún sá á eftir Stebba á hafið út.

Og hann Stebbi út við lunningu á lakkskóm svörtum stóð

upp á Línu renndi karlmannlegum sjónum.

Nei,þeir kveðja ekki margir svona ást og svona þrá,

eða sigla burtu spariskónum á.

Og hann Stebbi var að hugsa, meðan hægt þeir sigldu út,

hversu hetjuleg sú kveðjustundin væri,

hlutverk réttu: fagra stúlkan og hinn djarfi ungi sveinn,

drengilegur svipur harður eins og steinn.

Meðan Stebbi var að hugsa þetta, höfnin sagði bless

og á hafsins öldum skipið fór að velta.

Yfir borðstokk nokkrar gusur komu glettnum öldum frá,

svo að gefa tók nú spariskóna á.

Og hún Lína enn á bryggjunni svo beygð og döður stóð

þegar bátur vona hennar aftur sneri.

“Upp með fjandans æludýrið” öskrað var þá dimmum róm

og einhver steig á land í blautum spariskóm.

Já, vér sigldum marga hetjuför í huga vorum út

og í hörðum leik af drengjum öðrum bárum,

en í dagsins heimska lífi margur draumur okkar þó,

varð að deyja, því við gátum ekki nóg.