Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Senn kemur vor
Senn kemur vor
Senn kemur vor, sólin vermir spor.
Rísa af rökkurblund runnar og blóm.
Fjallalind fríð laus við frost og vetrarhríð,
létt og blítt, í lautum hjalar, í lautum hjalar,
í lautum hjalar hún við lágan stein.
Fuglinn minn flaug, frjáls um loftið smaug,
leitaði strandar í lifandi þrá,
norður til mín þar sem nætursólin skín.
Kvað hann þá svo kátum rómi, svo kátum rómi,
svo kátum rómi hátt um kvöldin löng.
Sigríður I. Þorgeirsdóttir
