Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Söngur gamla garðyrkjumannsins
Þegar lít ég björtu blómin
bernskuminning sækir á,
sé ég gjörla góðan öldung
garðinn heima fegra þá.
Finnst mér sem að ennþá ómi,
yndisfögrum, djúpum rómi,
aldins vinar eigið lag
er hann söng með gleðibrag:
Taktu bros og söng og sólskin
sáðu öllu’ í huga þinn.
Gerðu’ að hátíð gráan dag
og gleði og ljósi hleyptu inn.
Var sem kveiktu vor í beði
verkin þessa gamla manns,
fuglar, hátt í toppum trjánna
tóku undir sönginn hans.
Bernskan líka, stelpustýri
stöðugt var sem ævintýri,
dægrin voru ljós og löng,
lítil telpa’ af gleði söng;
Taktu bros og söng................
Þegar tárin vanga væta,
vakna kvíði’ í huga fer
oft ég hugsa’ um horfni vinur
heilræðið sem gafstu mér. –
„Söngurinn hann sælu vekur,
sorgir allar burtu rekur.“ –
og það finn ég enn í dag
er ég raula þennan brag:
Taktu bros og söng................
Stæling á dönskum texta: Margrét Ólafsdóttir
