Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Kvölda tekur sest er sól

Kvölda tekur sest er sól
sígur þoka' á dalinn.
Komið er heim á kvíaból
kýrnar, féð og smalinn.

Senn er komið sólarlag,
sést á norðurheiðum.
Líður á þennan dýrðardag.
Drottinn stýri leiðum.

Senn er komið sólarlag,
sést á norðurfjöllum.
Líður á þennan dýrðardag,
Drottinn hjálpi' oss öllum

Senn er komið sólarlag,
sést á norðurtindum.
Líður á þennan dýrðardag,
Drottinn stýri vindum.

Senn er komið sólarlag,
sendi' oss Drottinn friðinn,
og svo gefi annan dag
eftir þennan liðinn.

Íslenskar þjóðvísur