Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Suðurnesjamenn
Suðurnesjamenn
Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn.
ekki var að spauga með þá útnesjamenn.
Sagt hefur það verið um suðurnesjamenn
fast
þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Unnur bauð þeim faðm sinn svo ferleg og há,
kunnu þeir að beita hana brögðum sínum þá.
Kunnu þeir að stýra og styrk var þeirra mund
bárum
ristu byrðingarnir ólífissund.
Ekki er að spauga með íslenskt sjómannsblóð
ólgandi sem hafið og eldfjallaglóð.
Ásækið sem logi og áræðið sem brim,
hræðist hvorki brotsjó né bálviðra glym.
Gull að sækja’ í greipar þeim geigvæna mar
ekki nema ofurmennum ætlandi var.
Þjóðin geymir söguna öld eftir öld
minning hennar lýsir eins og kyndill um kvöld.
Ólína Andrésdóttir
