Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Sumarnótt (Undir bláhimni)

Undir bláhimni blíðsumars nætur
barstu’ í arma mér rósfagra mey .
Þar sem döggin í grasinu grætur,
gárast tjörnin í suðrænum þey.
Eg var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú er ljósblik á lífshimni mínum
þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld.

Eg vil dansa við þig, meðan dunar
þetta draumblíða lag, sem eg ann,
meðan fjörið í æðunum funar
af fögnuði hjartans, er brann.
Að dansa dátt, það er gaman
uns dagur í austrinu rís,
Þá leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.

Magnús Kr. Gíslason frá Vöglum