Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Sveinkadans

Þeir kalla mig Sveinka káta
og konurnar þora ekki’ að láta
dæturnar dansa við mig.
Og karlarnir áminna synina sína
og segja þeim ljótt um klækina mína,
vilja’ að þeir vari sig.

En komið þið hér, heyrið þið mér
ég er hreint ekki eins slæmur og látið er.
Já leiðumst nú öll langt út á völl
leikum og dönsum uns sól skín á fjöll.
Nú, nú, komið í fans fljótt engan stans
og syngjum nú Sveinkadans.

Mér er alveg sama hvað aðrir segja
ég elska lífið þeir mega deyja.
Mér er alveg sama hvað eftir fer
ég elska lífið og skemmti mér
með hverjum og hvar sem er.
Hæ hó, hæ hó, hæ hó

Mér er alveg sama og ekkert til ama,
hæ hó, hæ hó, hæ hó.
Ég er aldrei í ró, fæ aldrei nóg.
Hæ hó, hæ hó, hæ hó.

Gestur