Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Tommi fjallabúi

Tommi var ungur fjallabúi,

í bjálkakofa hann bjó.

Kindur átti hann fáar,

af hestum átti hann nóg.

Og svo söng hann bara:

Ég er Tommi fjallabúi

og geri það sem ég vil.

Glamra bara' á minn gítar,

drekk og spila á spil.

En eitt sinn fór hann í bæinn

og beinustu leiðina' á krá.

Þvílíkan fjölda af flöskum

í hillum þar hann sá.

Og svo söng...............

En lítið varð úr þeirri drykkju

því unga stúlku hann sá.

Tommi varð yfir sig hrifinn

og hjartað í Tom fór að slá.

Og svo söng...............

Á Faxa fór hann um fjöllin

en fannst það tómleg og autt,

kofinn svo lítill og ljótur

og lífið svo hamingjusnautt.

Og svo söng...............

Og við þetta mátti ekki sitja,

hann hugsaði alltaf um það.

Og loksins fór hann í bæinn

og ungu stúlkunnar bað.

Og svo syngja þau:

Við erum bæði fjallabúar

og okkur finnst það nú nóg.

Glömrum bæði' á okkar gítar

og lifum lífinu' í ró.

Höf. ókunnur