Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Æ, ó, aumingja ég

Hún Dísa hún er sveitastúlka sælleg rjóð og feit
hún syngur um hann Óla sem á búfé sitt á beit.
Hún dansar allan daginn svo dátt um allan mó
en dettur stöku sinnum og þá hrópar Dísa Ó.

Hún hrópar ó, æ, aumingja ég
og aftur ó, æ, aumingja ég
og ennþá ó, æ, aumingja ég
og aftur ó,ó, æ, æ, aumingja ég.

Hún Dísa hún er sveitastúlka sælleg rjóð og feit
og systir hennar Viggu sem elti gamla geit.
Hún þekkir Kalla kalda sem keyrir mjólkurbíl
hann kyssti'ana undir hlöðuvegg og Dísa sagði Ó.

Hún sagði ó, æ, nei nei og þó
og Kalli ó, æ, þetta' er nú nóg.
Og Dísa ó, æ, nei nei og þó
hún sagði ó, ó, æ, æ, en Kalli hann hló.

Og Kalli hló og hló og hló og hló þar til hann dó
af hlátri fannst þá Dísu heldur en ekki komið nóg.
En hlöðuveggnum undir hún hímir fram á nótt
og sjái' hún koma kavaler hún kallar til hans ótt.

Hún kallar hó, hæ, komdu til mín,
hó, hæ, koss upp á grín.
Hann svarar hó, hæ, hvað þú er fín
og viltu verða fjórða kerlingin mín.

Ólafur Gaukur Þórhallsson