Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Undir Stórasteini


Það var eitt sinn ógnar lítið stelpuhró
sem fór oft með mér fram að sjó.
Hún var klædd í ullarpeysu oná tær,
með freknótt nef og fléttur tvær.


Saman tvö í fjörunni við undum okkur vel
meðan kollan var að kafa eftir kuðungi og skel.
Og á kvöldin þegar sólin sigin var
sátum við í næði, bæði, undir Stórasteini,
þar sem hún, í leyni, lagði vanga sinn
ósköp feimin upp við vanga minn.


Síðan hef ég konur séð í Cairó,
í Mandalay, í Mexíkó.
Líka þær sem kyrrahafið kafa í
og eiga heima á Hawaii.
Sumar klæddust hálmi þegar þeim var heitt
en aðrar bara klæddust ekki yfirleitt í neitt.


Alltaf samt í huga mér og hjarta bjó
hún sem klæddist ullarpeysu undir Stórasteini.
Forðum tíð, í leyni, lagði vanga sinn
ósköp feimin upp við vanga minn.

Jónas Árnason