Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Vegir ástarinnar
Vertu sæll, ég kveð þig kæri vinur,
klökk af þrá ég bið þig gleym þú mér.
Vertu sæll við sjáumst aldrei, aldrei aftur á ný,
og ást mín er horfin með þér
Ég aldrei framar elska mun neinn annann,
eilíf þrá í huga mínum er.
Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur
og ást mín er horfin með þér.
Þegar sól er sest á bak við fjöllin,
sérhvert kvöld þá hugsa ég til þín.
Minningin hún lifir þó að annað hverfi mér allt
það eina er huggunin mín.
Kveðju mína kvöldsólin þér færir
kossinn inn í geislum hennar er.
Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur
og ást mín er horfin með þér.
Númi Þorbergsson
