Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Við eigum samleið
Um
bláan sæinn söngvar óma
því sumarið er komið ástin mín,
og aftur stendur allt í blóma,
af ungri gleði jörðin skín.
Og því
skal fagna af heitu hjarta
og heilla þennan fagra ljúfa dag,
og líti himinn heiðið bjarta
skal hefjast okkar gleðilag.
Og
glaðar raddir syngja í sálum okkar beggja,
mót sumri stefnir framtíðin öll.
Og hátt er enn til lofts og vítt til veggja
í vorsins drauma bláu sólskins höll.
Og
þangað hjartans löngun líður
sem lengst og fegurst dagsins endurskín
Sjá vorið eftir okkur bíður,
við eigum samleið vina mín.
Tómas Guðmundsson
