Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Við Vatnsmýrina
Ástfanginn blær í grænum garði svæfir
grösin sem hljóðlát biðu sólarlagsins.
En niðri í mýri litla lóan æfir
lögin sín undir konsert morgundagsins.
Og úti fyrir hvíla höf og grandar,
og
hljóðar öldur smáum bárum rugga.
Sem barn í djúpum blundi jörðin andar
og borgin sefur rótt við opna glugga.
Og þögnin, þögnin hvíslar hálfum orðum,
hugurinn minnist söngs sem löngu er dáinn.
Ó, sál mín, sál mín! Svona komu forðum
sumurin öll sem horfin eru í bláinn.
Ó, blóm sem deyið! Björtu vökunætur
sem bráðum hverfið inn í vetrarskuggann!
Hvers er að bíða? Hægt ég rís á fætur
og hljóður dreg ég tjöldin fyrir gluggann.
Tómas Guðmundsson
