Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vorvindar

Vorvindar

Þegar hlýir vorsins vindar
vetrar leysa klakabönd,
grænka taka tún og rindar,
tíbrá vefur dal og strönd.

Heim úr suðri fuglar fljúga
fylla loftið gleðisöng,
kátar öldur kletta gnúa,
kvöldin verða björt og löng.

Vorsins ungi undramáttur
öllu lífi er fögnuð býr,
og þess kviki andardráttur
öllum svalar, mildur, hlýr.

Aldnir hugir aftur finna
æsku sinnar draumalönd,
sjá í veröld vona sinna
við sér hlæja bláa strönd.

Páll Helgason