Sjór loft og land
22. mars, 2026Eldur og brennisteinn
22. mars, 2026Þátttakendur sitja í hring á gólfinu. Einn er í miðjunni og er kisan.
Kisa á að skríða, á fjórum fótum, að einhverjum í hringnum, nudda sér upp við hann og mjálma. Sá sem kisa er að nudda sér upp við á að klappa á bakið á henni og segja; „Aumingja kisa“. En—–hann má ekki fara að hlæja, ekki einu sinni brosa. En allir hinir í hringnum mega hlæja eins mikið og þeim sýnist. Kisa má endurtaka leikinn þrisvar sinnum við sama þáttakandann. Ef honum stekkur ekki bros á vör verður hún að reyna við einhvern annan. Sá sem fer að hlæja verður kisa og fer inn í hringinn.
Góða skemmtun!
