Átta fílar
22. mars, 2026
Ein ég sit og sauma
22. mars, 2026
Átta fílar
22. mars, 2026
Ein ég sit og sauma
22. mars, 2026

Hópurinn stendur upp við vegg allir nema einn sem snýr á móti hinum og stendur í dálítilli fjarlægð frá hópnum. Sá sem „er hann“ (segjum að það sé hann Þórir) byrjar og syngur;

Þórir:“Bim-bam-bim-bam, bimbi-rimbi-rim-bam“. Um leið gengur hann fram í fyrri hluta vísunnar en bakkar til baka í þeim síðari.

Þá svarar hópurinn (og gengur fram og aftur eins og áður): „Hver er að berja, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Það er hann Þórir, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Hópur: „Hvern vill hann finna, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Elskulegu Stínu sína, bimbi-rimbi-rim-bam“.
( og nú nefnir Þórir þann sem hann vill fá til sín, ath. það getur verið hvort sem er strákur eða stelpa.)
Hópur: „Hvað vill hann með hana, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Láta hana vaska upp, bimbi-rimbi-rim-bam“. (auðvitað ákveðið þið sjálf hvað viðkomandi á að gera)
Hópur: „Hvað fær hún að launum, bimbi-rimbi-rim-bam“.
Þórir: „Tíu börn í bala og átján rottuhala“ (muna, vera sniðugur í svari en ekki leiðinlegur)
Hópur: „Fari hún þá með gleði, bimbi-rimbi-rim-bam“. (eða skít og skömm, eftir því hvað við á)
Og nú fer Stína yfir til Þóris og þau koma sér saman um hvern á að biðja um næst. o.s.frv.

Afbrigði af þessum leik er „Hæsingja-læsingja-lon-don-don“. Þá byrjar sá sem er hann á að syngja:

„Mætti´ég biðja’ um Stínu,Hæsingja-læsingja-lon-don-don“.
Hópurinn svarar:„Hvað vilt þú með Stínu, Hæsingja-læsingja-lon-don-don“.

Og síðan er restin af leiknum eins og „Bim-bam bim-bam“, nema að þið segið alltaf; „Hæsingja-læsingja-lon-don-don“, í restina á hverri setningu. Lagið er alveg eins.

🎵 Upptöku með laglínunni má finna hér. 

Góða skemmtun!