Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Slá í gegn
Ef ég ætti óskastein
yrði óskin aðeins ein,
ég er alltaf að reyna
þú veist hvað ég meina,
um frægð og framandi lönd.
Slá í gegn, slá í gegn
þú veist að ég þrái að slá í gegn.
Af einhverjum völdum
hefur það reynst mér um megn.
Ég gæti boðið þér betri kjör
bíl, íbúð brúðarslör.
Vakinn og sofinn,
stálsleginn, dofinn
ég reyni að öðlast frægð.
Slá í gegn, slá í gegn
þú veist ég þrái að slá í gegn.
Af einhverjum völdum
hefur það reynst mér um megn.
Ég myndi gera næstum hvað sem er
fyrir
frægðina nema kannski
að koma nakinn fram.
Ó, ó,
allt annað fyrir það
ég færi heljarstökk afturábak
af litlu bretti, fyrir frægðina.
Slá í gegn, slá í gegn
þú veist ég þrái að slá í gegn.
Af einhverjum völdum hefur það
reynst mér um megn.
Stuðmenn
