Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stína var lítil stúlka í sveit

Stína var lítil stúlka í sveit

stækkaði óðum blómleg og heit.

Hún fór að vinna, var margt að gera,

lærði að spinna, látum það vera.
Svo var hún úti sumar og haust

svona var lífið: strit endalaust.
Samt gat hún Stína söngvana sína

sungið með hárri raust.

:,: Nú liggur vel á mér:,:

gott er að vera léttur í lund

lofa skal hverja ánægjustund.

Gaman fannt Stínu að glettast við pilt

gaf hún þeim auga, var oftast stillt.
Svo sá hún Stjána, það vakti þrána,

hann kom á Grána útyfir ána.

Sæl var hún Stína , saklaus og hraust,

svo fór hann burtu koldimmt um haust,

samt gat hún stína söngvana sína

sungið með hárri raust.

Nú er hún Stína gömul og grá,

getur þó skemmt sér dansleikjum á,

situr hún róleg, horfir á hina

hreyfast í takt við dansmúsíkina.
Alltaf er Stína ánægð og hraust,

aldrei finnst henni neitt tilgangslaust.

Enn getur Stína söngvana sína

sungið með hárri raust.

Óðinn G. Þórarinsson