Í leit að áningastað
31. mars, 2026Við Svignaskarð
31. mars, 2026Vísur úr ferðalögum um landið
Dýrðarljóma sendir sól,
sigrar myrkrið nætur.
Sumarblóma hvítum kjól
klæðast fjallarætur.
—
Unaðsstundir átti hér
undir fjallaskörðum.
Gott að kynnast ætíð er
öræfanna vörðum.
—
Þó mig hremmi kuldakló,
Kári gnauði á fjöllum,
alltaf finn ég yndi og ró
inn á Hveravöllum.
—
Rokið okkur ruglar nú,
reynist skapið digna.
Það er okkar traust og trú
að taki brátt að lygna.
