Til ferðafélaga 
31. mars, 2026
Þrándheimsblót
23. apríl, 2026
Til ferðafélaga 
31. mars, 2026
Þrándheimsblót
23. apríl, 2026

ORA

Alltaf blessa börnin þín
borðhald æskuspora
ef þú velur væna mín
varninginn frá Ora.

Langi þau í ljúfan keim
ljós ég a þig skora
að gleyma ekki að gefa þeim
gulrætur frá Ora.

Láttu brauð í ofninn inn,
ef engan þarf að hora,
þeir mega borða munaðinn
úr maísdós frá Ora.

Tafist matar getur gerð
ef gestir inn sér bora.
Í hvelli fisk- á borð bú berð
búðinginn frá Ora.

Allir geta skapi skipt
ef sker þá hungrið glora.
Þá geta barna brúnum lyft
bollurnar frá Ora.

Fáir þú nú góðan gest
gæðin láttu mora.
Mundu þá að bregðast best
baunirnar frá Ora.

Oftast kokkar kannast við
klára skoðun vora
að rófurnar og rauðkálið
reynist best frá Ora.

Rekkar þessir þrátt um svið
þýðast engan sora,
en benda á besta grænmetið
sem blanda þeir hjá Ora.

Af þessu má sjá mitt svar.
Síst ég mundi þora
að láta vanta vörurnar,
vönduðu, frá Ora.

semagt ALLTAF ORA