Við eyðibýlið Þorleifsstaði
23. apríl, 2026Dvergliljurnar
23. apríl, 2026Hugsað til Kolbeins Tumasonar
Vildi ég gjarnan
vera þú
og ljóðheima lita,
hugsun senda
hærra öllum
mannlegum mætti.
Hendingarnar
hreinar, enn
átta hundruð ára
skiljum við
og skynjum
guðsótta guma.
Október, 2014
