Hugsað til baka
23. apríl, 2026
Beðið eftir vori
23. apríl, 2026
Hugsað til baka
23. apríl, 2026
Beðið eftir vori
23. apríl, 2026

„Bjarnaháttur“

Bjarnahátt bað mig að yrkja
bögunnar vinur.
Það mun ég gera með gleði,
grjótfýlan bíður.
Sorginni sinni því eigi
en síkæti lofa,
því komið er sumarið,sólin,
og syngjandi lóur.

Þó að enn fenni í fjöllin
og frysti um nætur
gleðina ber okkur birtan
og bjartsýni fyllir.
Og svo fer ég bráðum að byrja
bleikjuna’ að veiða.
Þá verður kátt hér í koti
og kjamsað á hausum.

29.apríl 2013