Forsetaefni
23. apríl, 2026
Afrakstur næturvöku
23. apríl, 2026
Forsetaefni
23. apríl, 2026
Afrakstur næturvöku
23. apríl, 2026

Forsetakosningar árið 1980

Er ég kaus minn æðsta mann,
engri skoðun náði.
Með Guðlaugi minn vilji vann
þó Vigdísi ég dáði.

Því er núna ofin önd
efasemdar þræði.
vildi ég þau hönd í hönd
hafa þarna bæði.

Hughreysting til Elsu þegar ljóst var hvað Pétri gekk illa:

 Alltaf munum æ og sí
Elsa með þér standa
þó að taki að þynnast í
þínum frambjóðanda.