Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Bílavísur (Ertu að koma)

Ertu að koma, já elskan mín góða,
alveg hreint á mínútunni, ha, ertu’ í nýjum bíl.
Alveg ertu ágætur, agalega sætur,
að ætla að bjóða mér það er alveg hreint í stíl.
Og ef að það snjóar þá eru til nógar
keðjur sem að koma okkur óhultum alla leið.
Elskan hann Dóri minn, sterki og stóri,
hann stýrir svo vel þó gatan sé ekki breið.

Ó, þarna er hann, já flott skal það vera,
Fordinn módel 1900 og ég veit ekki hvað.
Upp í hann stíg ég, á ástarvængjum flýg ég,
og upp í Mosfellssveit fer í ævintýraleit.
Með handtösku stóra ég hallast að Dóra,
æ, gormurinn í framsætinu stakk mig á versta stað.
En það er nú svona að þreyja og vona,
en þetta lagast skjótt, Dóri minn sér um það.

Keðjan er slitin, það skellur í bílnum,
“Skríddu undin bílinn Dóri, greyið mitt flýttu þér.
Ertu alveg óður, ó, je minn góður.
Þarna reyfstu sokkinn minn, álfurinn þinn;
ég fer aldrei aftur út með þér, alein, um það sver ég.
Ég hef aldrei á ævi minni ekið með slíkum draug.
Ó, núna springur og í honum syngur
og á endanum stingst ofan’ í moldarhaug.”

Jón Sigurðsson