Íslensk náttúra

Margrét ferðaðist mikið um Ísland ásamt manni sínum Guðmundi og börnum. Hún hreifst mikið af hálendinu og átti sér ýmsa griðastaði í villtri náttúrunni, svo sem í Þórsmörk og í Landmannalaugum löngu áður en þessir staðir urðu í alfaraleið ferðamanna. Íslensk náttúra var henni því mikill innblástur í laga- og ljóðagerð.