Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ellin

Við ellina er illt að kljást og eins við heiminn
og til hvers var að vera glíminn
hann vinnur svona á öllum, tíminn.

Elli stígur yfir mig og allur fjandinn,
þyngjast tekur létta lundin,
leið er mér hver ævistundin.

Aldrei held ég venjist við að verða hrumur.
Mig langar enn í glaum og glímur,
ganga í Skrúð og yrkja rímur.

Að trúlofast og tefla skák og tæma kollu
getur breytt í æsku elli
eins og ríða Löpp á svelli.

Mig sárlangar að sigla þá og sjá hann hvessa.
Og verði mér á víf að kyssa
verð ég eins og hlaðin byssa.

Páll Ólafsson