Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Á bernskuslóð

Ég bíð þín á bernskuslóð
og bind þér mín tregaljóð,
er hugur hvert eitt sinn
er horfinn, vinur minn,
í minninganna mildu glóð.

Þú veist að mig binda bönd
frá bernsku við þessa strönd,
við blóm og blað á grein,
hvern birkirunn og stein
sem blærinn strýkur blíðri hönd.

Hér bíð ég þín vinur
og bergmál þíns hjarta
boðar mér fögnuð og trú.
Ég veit að þú kemur
og von okkar bjarta
vísar leið er kemur þú.

Ég heyri þitt hjarta slá
handan við fjöllin blá.
Við ljúfa draumalind
nú lít ég þína mynd
við endurskin frá æskuþrá.

Loftur Jónsson