Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Á ferð
Gegnum myrkur, gegnum él,
gegnum fell og hálsa
sé ég þig og sé þig vel,
saklausa og frjálsa,
blómlega eins og blóð í snjó
blunda á kodda þínum.
Æ, hvað þú, mín augnafró,
ert nú fögur sýnum.
Þínu blíða brjósti frá
blæju dreg ég hvíta
til að heyra hjartað slá
og helgidóminn líta,
til að anda á brjóstið bjart
og biðja Guð þig dreymi
ósköp gott og ósköp margt
úr okkar sæluheimi.
Páll Ólafsson
